Ævintýra Kindin..

..að leika við lömbin

|

þriðjudagur, desember 20, 2005

Hún systir mín ljósmóðirinn er búin að læra svona nálastungur. Mér finnst það voða spennó, í kvöld kom ein ólétt kona hingað í stungur og ég var voða æst að fá stungur líka. Þó að ég sé ekki með grindagliðnun, mjóbaksverki eða annað sem hrjáir óléttar konur. Fyrir valinu voru 7 punktar, einn á enninu fyrir slökun og svefn, verkjapunktar á sitthvorri hendinni, og svo 4 í löppunum þar meðtalinn "konupunkturinn" (vona að ég fái ekki hriðar eftir það). Lá eins og nálapúði upp í rúmi í hálftíma og reglulega nuddað í nálunum. En þetta er bara hlevíti magnað, var dofin og með heitan straum niður í hendur og fætur. Nú veit ég hvernig þetta er.
Bara rólegheitar dagar hjá mér, fer líklegast upp í sveit á fimtudag.
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com