Kristin og Mamma mín áttu afmælli í gær. Til hamingju með það. Hún Kristiin eldaði yndælis gúllash og nóg af Medina í gærkvöldi. Skemmtileg blanda af fólki frá ymsum þjóðernum samankomin. Annars er ég bara að detta inn í mína rútínu, fara í corpus og þess háttar. Er batnað í öklunum. Svo erum við Rtiga bara að tjilla á kvöldin og elda góðan mat. Talandi um mat, þá var ég búiin að taka út nautasteik sem var í affrystingu á borðinu á meðan ég var í skólanum ídag, svo þegar ég kom heim mætti ég steikinni blóðugri á gólfinu og kisa búin að bíta vænan bita úr henni......... ansk... ég hefði getað sagt mér þetta fyrir. Eg endiaði þá bara á að sjóða steikina og gefa kisu allt stykkið. En sem betur fer komum við Ritga við hjá Kristinu eftir skóla og fengum afgang af súpunni síðan í gær, svo við vorum ekki svangar. Verði kisu að góðu.
|
|
<< Home