Ævintýra Kindin..

..að leika við lömbin

|

mánudagur, júlí 05, 2004

Eru grikkir athygglissjúkir, er ekki nóg að vera með ólympíuleikana á haust og leyfa þá portúgölum eða trékkum í staðin að vinna EM. Ég skil þetta ekki. En ég verð að segja að þættirnir hans Þorsteins J voru alveig frábærir, og ég er honum mjög þakklát fyrir syrpuna sem hann gerði í síðasta þættinum um fótbolta menn sem fóru úr að ofan "... og þetta gleður konurnar" sagði hann.

Jobbííí,,ég er í frí á morgun. Harpa og Íris komu upp á spítala í dag, en þær eru í ferðalagi um vestfirðina, gaman að hitta þær og ég ætla eitthvað að tjilla með þeim á morgun.
Í kvöld fór ég í bíó með Urði, sem er hjúkkunemi að vinna hér í sumar. Fórum að sjá Troy, var reyndar búin að sjá hana. Bíóið hér sýnir eina sýningu á viku, svo allir fara í bíó á sama tíma, mjög fyndið. Minnti mig svolítið á bíóið í félagsheimilinu í Borgarnesi, en samt heldur meira professional. Þurfti allaveganna ekki að byðja um að laga fókusinn eða hækka, eins og í Borganesbíó. (Kjartan bíósjtóri)
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com