Ævintýra Kindin..

..að leika við lömbin

|

föstudagur, ágúst 01, 2003

Er þetta ekki typist, í gær átti ég frí og átti nu að gera ýmisslegt. Við stelpurnar ætluðum að fara til Stokkseyrar ut að borða á fjöruborðinu.......en nei þegar á reyndi datt það upp fyrir vegna ymissa ástæðna. Svo ætlaði Egill bróðir að bjóða mér i mat en ég afþakkaði það út af því að ég ætlaði hitt. Eg endaði á að fara upp i Hraunbæ til Hrafnhildar sem er fyrir norðan og horfði a slatta af bíomyndum i íbuðinni hennar og datt inn i þvílikt letikast að ég orkaði ekki i bæinn að hitta Unni á kaffihúsi. Myndirnar sem ég sá meðal annars var Gangs of New york sem er alveig skelfilega skelfilega leiðinleg og með svona american patriot theme sem fer alveig i minar fínustu, miklar blóðsúthellingar og slátranir. Svo sá ég The Barber shop sem er bara fín afþreying. Panic room, ágætis spenna og seinast Ghost ship sem er svona dæmigerð draugaskips mynd. Ja og jaja þá er ég búin með video kvota mánaðarins.
En i dag er 1.águst sem er alveig dásamlegt því á sumrin þýðir það útborgunardagur (en ekki borga leiguna eins og a veturna)....á sumrin koma mánaðarmótin alldrei of snemma ein a veturna eru alltaf mánaðarmót, þett er alveig furðulegt. Eg er ekki á neinum forstjóra launum sem 3ja árs læknanemi, en ég kvarta ekki á svona fallegum degi og 21 stiga hiti i mosó, og eg fór að hlaupa upp að Hafravatni....algjört yndi. En hvernig geta menn verið með rumlega 4 milllj í mánaðarlaun, ég á ekki í erfiðleikum með að eyða peningum en ég sé fyrir mér vandræða ástand ef ég væri með þessi laun. Þá yrðu skópör bara einnota.
Hann Jóhannes Ben á afmæli í dag, búin að lifa á þurru landi (utan legvatns) í einn mánuð og veit ekki annað en honum líki það vel, til hamingju með það.
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com