Ævintýra Kindin..

..að leika við lömbin

|

miðvikudagur, ágúst 27, 2003

Ég las á mbl.is að maður hafi verið skotinn til bana fyrir utan skemmtistað og annar særst í miðborg Budapest og tengist það glæpaklíku sem er starfrækt þar í borg. Þetta er nátturulega skelfilegt og ekki gott afspurnar, en miðað við stórborg þá má segja að Budapest sé nokkur friðsæl og þvílikar uppákomur heyra til stórfrétta því þær eru sjaldgæfar. Það eru líka drepnir menn í Reykjavík. Á rölti mínu um næturlíf Budapest þá hef ég alldrei verið vör við neitt vesen eða ofbeldi, en aldrei er of varlega farið hvort sem er i Reykjavik eða Budapest.
|

þriðjudagur, ágúst 26, 2003

Á mínum góða vinnustað stendur til að fara á ráðstefnu til Svíþóðar nokkrar hjúkkur og sjúkraliðar, og það er gott mál. Nú fer að styttast í ferðina góðu og stressið farið að gera vart við sig á sumum bæjum. Það er alveig yndilsega skemmtilega að fyljast með umræðunni hvað hægt er að gera stórmál úr litlu. Nú tvær vikur fyrir brottför er mikið spáð í hvað á að taka með, á að vera í kjól, pilsi, hvernig verður veðrið, á ég að kaupa mér nýjan varalit og ég veit ekki hvað og hvað. Mér finnst svona ferðalög orðið eins og að fara með stræto upp í Breiðholt en ég veit að það er ekki að marka mig, hef hingað til verð talin svona létt kærulaus á mörgum sviðum. En ég get skemmt mér endalaust yfir þessu. Og í því samhengi rifjast upp fyrir mér þegar ég hef séð íslendinga á ferðalagi útlöndum og þá aðalega konuhópa (svona saumaklúbba stemming), alltaf að taka myndir, rall hálfar, kjafta og kalla, skoða í búðir og segja á innsoginu...."gvöð kvað þett´er lekkert". Svona er nú það.

Annars hef ég verið að fyllast af kvefi og er með rautt nef og svolitil þreyta í mér og hef ég ákveðið að hvila mig á heilsurækt og hlaupum i um 2 vikur eða þar til skólinn byrjar. Bara ligg upp í soffa horfi á HM i frjálsum og borða kartöfluflögur eins og iðjuleysingi. Ég fékk nett pirrings kast á sambúðinni í gær sem að öllu leiti hefur gengið vel. Frú Adelhæd hefur verið að passa tvö ömmubörn, strákar sem eru nokkuð fyrirferða miklir en það er nú í góðu lagi. Svo er líka hin amman, eldri kona elskuleg en mjög háróma og talar allt í barna máli og "elsku kúturinn minn og ástargullið mitt" og þess háttar sem er bara mjög fyndið svona í smá tíma. Svo í gærkvöldi komu nokkrar vinkonur og Skúli kærastinn hennar Adelhæd með myndakvöld, og í ofan á lagt var spilaður af geilsadiski kór aldraðra í hæsta........maður lifandi þvílikt fuglabjarg. Öskrandi krakkar, gjammandi gamlar kellur við undirleik kór aldraðra..... þetta er ekki á neina heilbrigða manneskju leggjandi. Eg hugsaði með mer að þetta væri að taka enda, eg verð þarna bara í um 2-3 daga í viðbót. En auðvitað var Adelhæd bara að skemmtasér á sínu heimili og er það yndislegt og ég bara aumur leigandi. Kanski að ég krassi á Grenimelninn í nokkrar nætur ég veit að skúrinn stendur mér til boða. Svo fer í sveitina.
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com