Ævintýra Kindin..

..að leika við lömbin

|

miðvikudagur, október 27, 2004

vek athyggli á mbl.is
Ríkisstjórn Ungverjalands hefur bannað sölu á papriku í landinu af heilsufarsástæðum, eftir að eiturefnið aflatoxín fannst í paprikum sem þrjú ungversk fyrirtæki dreifa. Jafnframt hafa Ungverjar verið hvattir til þess að fleygja öllum paprikum sem þeir kunna að eiga til heimavið, en paprikan er afar vinsæl kryddjurt í Ungverjalandi.

Bann við sölu á papriku tekur gildi á miðnætti í kvöld að ungverskum tíma. Jeno Racz, heilbrigðisráðherra landsins, sagði að bannið yrði í gildi þar til prófanir hefðu verið framkvæmdar sem staðfestu hversu mikið magn papriku hefði orðið fyrir eituráhrifum.

og

Vísindamenn við störf á afskekktri indónesískri eyju, Flores, hafa fundið bein forndverga sem lifðu þar um öróf alda einangraðir frá umheiminum og á sama tíma og maðurinn lagði heiminn að fótum sér. Meðal annars hafa þeir fundið bein fullvaxta dvergkonu sem verið hefur 91 sentimeter.
Ég vildi að þetta litla fólk væri enn til... mig langar að eiga svona forndverg.

|

þriðjudagur, október 26, 2004

Í gærkvöldi komu Kristin og Ritga að taka flétturnar úr hausnum á mér, ásamt Björgu tók það ekki nema um rúmlega klukkutíma, ég var frekar skrautleg á eftir og fékk nett hláturskast yfir eigin hárstatus. Og í dag átti ég einkar góðan hár-dag eða þannig, en það var ljúft að þvo loks á mér hausinn eftir rúmlega 2 mánuði. Fór svo á hárgreiðslustofuna til Tamasar og hann bjargaði hárinu mínu, svo nú er ég svona sæmilega til fara um hausinn.

Mig langar að deila með ykkur uppáhaldsbrandaranum mínum þessa daganna.
What do you call a snail in a boat..............a snailor
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com