Ævintýra Kindin..

..að leika við lömbin

|

föstudagur, ágúst 08, 2003

Eg er alveig sammála Björgu með þetta að "reyna ekki að fitta inn í einhverja ímynd"
Ég stið það að vera læknir og geta lika verið með gloss og bert á milli og fá flogakast yfir nýjum skóm og eyrnalokkum, og geta ekki sofið yfir því að fara i klippingu eða bjútí trítment. Já ég kannast við það allt og er stolt af því, við komum bara með nýja kynslóð lækna, svona er nútíminn i dag.

Eg er sem sagt að fara i bjútí trítment i dag kl.6, og fer svo i mat til Egils bróðirs ásamt Hrafnhildi systur, við systkynin ætlum að hafa það huggó. Á morgun ætla eg að kíkja i búðir á laugaveginum, og sjá svo gay-pride gönguna. Fara svo niður i Laugardal á bikarkeppni FRI og hitta Sunnu aðeins. Gulla á afmæli á sunnudag og hún ætlar að elda eitthvað huggulegt á laugardagskvöldið og svo kíkjum við í bæinn aðsjálfsögdu. Geri ráð fyrir að Björg verði þar einhverstaðar á sveimi með nýju hárgreiðsluna. Unnur ætlar líka út svo þetta verður án efa skemmtilegt kvöld. Á sunnudagskvöldið ætla ég i leikhús að sjá ain´t misbehaiving, mjög spennandi.

gleðilega helgi allir saman
|

miðvikudagur, ágúst 06, 2003

Ég er nú komin með svolitið leið á lúkkinu á síðunni minni, en hún Binna er búin að bjóða fram aðstoð sína til að gefa henni "make-over", ætla að reyna að gefa mér tíma í næstu viku til að heimsækja hana.
Mér finnst nú bara strax vera að koma helgi aftur, og gay pride a laugardaginn, veit ekki hvort ég ætla í bæinn, fór i fyrra og það var troðningur dauðans, en samt mjög skemmtilegt. Ég held að Sunna sé að koma í bæinn fyrir bikarkeppni FRÍ sem verður um helgina, þá ætla ég sko að hitta hana. ...hmmm margt spennandi á dagskránni. Og svo er hún Bjorg að fara út i næstu viku, ég var að kíkja á veður spánna fyrir Debrecen, en það er ekki eins heitt og á spáni, bara um 30 stig sem er alveig ásættanlegt. "Þú ættir að komast í smá sólbað Björg"
|

þriðjudagur, ágúst 05, 2003

Þá er blessuð Verslunarmanna helgin afstaðin, mér finnst nú skritið þegar verslanir hafa opið a mánudegi frídegi verslunarmanna, svo virðist að þessi dagur og helgi sé frí hjá öllum nema verslunarfólki.
Helgin var nú róleg hjá mér, eyddi henni að mestu leyti i Arbæjarsundlaug enda besta veðrir i Reykjavik. Ætlaði að vera voða dugleg og synda, en það fór fyrir lítið, letin skreið yfir mig og ég hafði mig ekki upp úr pottunum og sólinni, en það er nú i góðu lagi. Flestir vinir mínir voru að vinna laugard.kvöld og sun.morgun svo að engin nennti i bæinn á laugardagskvöldið. Í eftirmiðdaginn á sunnudag hitti ég Unni á brennslunni, miðbærinn var fullur af hálfnöktu fólki að spóka sig í sólinni og öll kaffihús búin að troða borðum langt út a götu, allt smekk fullt. Unnur var frekar óheppin með matinn sinn, fann hefti i fisknum, fékk þá BBQ kjuklinga samloku og þar var alllangt hár, en hún er ekki klíjugjörn kona, svona getur þetta verið, sveittur kokkur í matseldinni.
Við unnur fórum svo heim til hennar á Eggertsgötuna bara svona að tjílla og fengum okkur öl og lakka á okkur neglurnar. Svo komu þarna Þórhildur, Binna og Bjartmar og þetta endaði i ágætis partýi, og komumst ekki niður i bæ fyrr en um 2. Kíktum fyrst a 22 þar var ekki hræða, á Olstofunni var alveig killer stemming engin tónlist og endemis leiðindi. En á Sólon var stuð, og við Unnur létum til skarar skríða á dansgólfinu með tilheyrandi svitablettum. Hittum Ingvar og hann var i stuði. Alveig svaka fínt kvöld.

I gær hitti ég Bertu a Vegamótum, hún gaf sér tíma frá brjóstagjöfum altaf jafn brosmild og yndæl.
 
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com